Sálfræðingar

Hjá Heil Heilsumiðstöð starfa þrír sálfræðingar. Öll hafa þau víðtæka reynslu á greiningu og meðferð á sálfræðilegum kvillum hjá bæði börnum og fullorðnum. Andlegt heilbrigði skiptir okkur máli og því leggja sálfræðingar Heil Heilsumiðstöðvar mikla áherslu á að skjólstæðingar þeirra fái faglega og trausta nálgun á þeim vandamálum sem að viðkomandi er að takast á við.
Sálfræðingarnir vinna í miklu samstarfi við sjúkraþjálfara og næringarfræðinga og geta þannig stuðlað að heildrænni nálgun á heilsufarsvanda þeirra sem til okkar leita.
Tekið er á móti einstaklingum með bæði almennan og sértækan vanda þegar kemur að andlegri heilsu. Skipulagt og vandað meðferðarferli sem samanstendur af greiningu, ráðgjöf og meðferð.