Erlendur Egilsson
Sálfræðingur

Erlendur Egilsson
Erlendur Egilsson útskrifaðist sem sálfræðingur frá Árósarháskóla árið 2010 og hóf störf sem slíkur sama ár á Landspítala Háskólasjúkrahúsi (LSH). Hann starfaði fyrst um sinn á göngudeild Barna- & unglingageðdeildar LSH og færði sig svo yfir á Barnaspítala Hringsins. Síðastliðinn rúma áratug hefur Erlendur sinnt fjölbreyttum störfum sem sálfræðingur en hann hóf sjálfstæð störf árið 2012.
Erlendur hefur sinnt rannsóknum á þroska- & atferli barna og unglinga en í doktorsnámi sínu rannsakaði hann t.a.m. virkni snjallsímalausnar við heilsueflingu unglinga. Hann lauk doktorsnámi sínu (PhD) í klínískri barnasálfræði frá Háskóla Íslands árið 2024. Erlendur var um árabil þróunarstjóriheilbrigði
shugbúnaðarfyrirtækisins SidekickHealth samhliða rannsóknarstörfum sínum auk þess sem hann sinnti sálfræðikennslu við bæði Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Hann hefur um árabil unnið með afreksíþróttafólki í störfum fyrir Íþrótta – & ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), Íþróttasamband fatlaðra auk annarra sérsambanda ÍSÍ sem og í störfum sínum sem sjálfsstætt starfandi sálfræðingur. Erlendur hefur sömuleiðis sinn
t sálfræðiþjónustu fyrir hópíþróttalið efstu deilda í boltagreinum, landslið og einstaklingsíþróttafólk í fremstu röð ýmissa íþróttagreina.
Sem sjálfsstætt starfandi sálfræðingur sérhæfir hann sig í þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra auk þjónustu við afreksíþróttafólk á öllum aldri.
Birtingar
Sæmundsen, E., Magnússon, P., Georgsdóttir, I., Egilsson, E. & Rafnsson, V. (2013). Prevalence of autism spectrum disorders in an Icelandis birth cohort. BMJopen, 3, 1-7. doi: https://doi.org/10.
1136/bmjopen-2013-002748
Thorgeirsson, T., Torfadottir, J. E., Egilsson, E., Oddsson, S., Aspelund, T., Olafsdottir, A. S., Valdimarsdottir, U. A., Kawachi, I., Ludvigsson, J., Adami, H. O. & Bjarnason, R. (2021). Journal of Diabetes Science and Technology, 16(5):1150-1158. d
oi:10.1177/19322968211000815
Egilsson, E., Bjarnason, R. & Njardvik, U. (2021). Usage and weekly attrition from a smartphone-based health behaviour intervention for adolescents: Pilot study. JMIR Formative Research, 5(2), e21432. https://doi.org/10.
2196/21432
Egilsson, E., Bjarnason, R. & Njardvik, U. (2023). Usage and Daily Attrition of a Smartphone-Based Health Behavior Intervention: Randomized Controlled Trial. JMIR Mhealth Uhealth, 11, e45414. https://doi.org/10.
2196/45414
Egilsson, E., Bjarnason, R. & Njardvik, U. (2025). Usage and Daily Attrition of a Smartphone-Based Health Behavior Intervention Among Adolescents with Anxiety and Depression Symptoms: Randomized Controlled Trial. Submitted for publication.