Snjallúr – Trúa eða ljúga

SNJALLÚR – TRÚA EÐA LJÚGA

FYRIR ÞÁ SEM NENNA EKKI AÐ LESA LANGLOKU:

Snjallúr eru mjög ónákvæm þegar kemur að svefngreiningu.

Snjallúr eru nákvæmust í að mæla hvíldarpúls.

Hjartsláttarbreytileiki (HRV) er hluti af ósjálfráða taugakerfi og mælir streitukerfi (Fight or flight) og slökunarkerfi (rest and digest) líkamans.

Ef þú veist ekki hvað hjartsláttarbreytileiki þá kemur pistill um það mjög bráðlega.

Snjallúr mælir púls með að lýsa grænu ljósi og metur litinn á blóðinu.

Snjallúr eru mjög ónákvæm þegar mæla á púls á æfingu við úlnlið.

Snjallúr tengd við hjartsláttar strappa yfir brjóstkassa mæla rafboð hjartans og eru því mun nákvæmnari en úr sem mælir púls við úlnlið.

Ekki láta snallúrið segja þér hvernig þér líður.

LANGLOKAN

Snjalltækni síma og úra hefur aukist til muna síðastliðin ár og vinsældir þessa vaxið. Hinsvegar geta ráðleggingar um svefn, endurheimt og þjálfun verið mjög mikilvægt til að hámarka getu líkamans.  Fólk þarf því að geta treyst upplýsingunum úr snjalltækjunum okkar ef við notum þau okkur til ráðleggingar. 

En hvernig veit úrið hvernig þér líður ?

Hjartsláttarbreytileiki (HRV), hjartsláttartíðni og svefn eru  vinsælir mælanlegir mælikvarðar.

Tækninni fer ávallt fram og hún er í sífelldri þróun. Snjallúr og sambærilegir mælar virðast samvaxnir íþróttamönnum í dag. Þeir hafa að geyma algoritma sem lesa úr gögnunum og áætla okkar líðan. Flest okkar hafa tekið eftir græna ljósinu undir snjallúrinu sem skín á húðina og metur púlsinn, hjartsláttarbreytileika (HRV), öndunar tíðni, súrefnismettun og svefn svo eitthvað sé nefnt.

Það er ekki skrítið þó við spyrjum okkur stundum hvort að talan sem poppi upp í úrinu sé rétt ?

Eigu við að trúa því að úrið segir mér að ég er orðinn of þreyttur og á að hvíla  ?

Eða ætti ég að hlusta á tilfinningarnar mínar ?

Hvernig virkar þetta?

Tæknin er einhvern veginn á þessa leið :

Tæknin felur í sér að mæla blóðflæði með því að meta breytingar á blóðmagni. Græna ljósið aftan á úrinu ykkar er með ákveðnar bylgjulengdir. Það skín í gegnum húðina  og lendir á blóðinu.  Þá er hægt að meta blóðflæðið (púls, hjartsláttarbreytileika)  með að skoða hvaða ljós endurkastast til baka og hvað ekki. Því liturinn á blóðinu breytist eftir súrefnisþörf líkamans, hraða blóðsins, viðnámi og ýmsu fleiru.  Framleiðendur er búnir að búa til algorithma sem metur þessi gögn.

Australian Institute of Sport styrkti óháða rannsók þriðja aðila sem var gerð af Háskólanum í Queensland sem var  birt 22. Ágúst 2022 í ritrýnda tímaritinu Sensors.  Þar var nákvæmni sex þekktra snjalltækja  metið.  Hjartsláttur, hjartsláttarbreytileiki og svefn meðal annars.

https://www.mdpi.com/1424-8220/22/16/6317/htm

Tækin sem voru metin voru:  Apple watch s6, Garmin Forerunner 245, Polar Vantage, Oura Ring gen2, Whoop 3.0 og Somfit.  Tækin voru notuð rétt fyrir svefn og við svefn.  ATH  ekki við æfingar.   53 einstaklingar (26 konur og 27 karlar) meðalaldur 25 ára.  Þau sváfu í svefn rannsóknarstöð. Voru í rúminu frá 23:00-8:00.  Þátttakendur fengu öll sex tækin á sig sem söfnuðu öll sínum upplýsingum meðan þau báru einnig nákvæm mælitæki sem mældu raunverulegan svefn, hjartslátt og hjartsláttarbreytileika (HRV). Þá var hægt að bera saman ,,alvöru” gögn við gögnin úr þessu snjall tækjum.

Það koma í ljós í þessari rannsókn að mælingar á  svefnstigum líkamans eru frekar ónákvæm. Til upprifjunar þá förum við í gegnum 4 svefnstig. Vökuástand, grunnsvefn, djúpsvefn og draumsvefn.  Í rannsókninni var gerður samanburður við svefn rannsóknar tæki sem mælir heilabylgjur og fl. Þegar borið var saman við snjalltækinn kom þetta í ljós : Apple með 53% nákvæmni, Garmin 50%, Polar 51%, Oura ring 61% og Whoop 60% og Somfit  65% (sem er bara svefn mælir).  Ekki býsna nákvæmt.

Við hjartsláttarbreytileika kom Whoop best út með skekkju uppá  4,5ms, næst var Polar með 8,7 ms, Apple watch með 9,6ms, Oura ring 10,2 ms, Somfit 20,5 ms og Garmin rak lestina með 22,4 ms.

Við hvíldarpúls var hinsvegar mun minni skekkja þegar fólkið svaf.  Whoop kom aftur vel út með meðaltals skekkju uppá 0.3 púls á mínútu, Oura ring var með skekkju uppá  0.1 púls á mín, Polar 1.1, Garmin 5.0 slög , og Somfit 2.2.

Lokaorð.

Hvíldarpúls var nákvæmur.

Hjartsláttarbreytileiki var miðlungs nákvæmur.

Svefngæði var ónákvæmt.

Ég hef notað whoop-ið í að verða 2 ár. Fyrst Whoop 3.0 og nú Whoop 4.0. Núna er búið að setja inn uppfærslu fyrir nýjustu Garmin úrin þar sem getur einnig fengið HRV  sem var ekki í gömlu úrunum.  Nú get ég borið sjálfur  saman whoop 4.0 og Garmin Epix 2 og það er lítill munur á hvíldar hjartslátt og HRV en meiri munur á svefni eins og rannsóknin sýnir.

Þessi tæki eru í sífelldri þróun en það verður að muna að öll gögn koma frá ljósi í gegnum blóðið. Það verður erfitt að meta svefn út frá því með lítilli skekkju.

Þó að HRV gefur mér ágætar vísbendingar um hvernig mér á að líða segir það mér ekki alltaf hvernig mér líður. Það er oft glettilega nákvæmt en stundum fær ég góða æfingu þó tölunar segja annað.  Þetta gefur gott viðmið og fyrir þá sem elska græjur þá eru nýjustu snjall úrinn orðinn frekar skemmtileg.

Þó skal taka fram að púls við æfingar er mjög ómarktækur með eingöngu úrinu við úlnliðs mælingu. Því myndi ég alltaf mæla með hjartsláttar strappa yfir brjóstkassa.