Inga Valdís Tómasdóttir
Sálfræðingur

Inga Valdís Tómasdóttir
Inga Valdís útskrifaðist með BSc í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2020 og með cand.psych.
gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2022. Hún hóf störf sama ár hjá Vinnuvernd sem
sálfræðingur og hennar helstu verkefni þar voru einstaklingsviðtöl og fræðsla til fyrirtækja.
Helsta áhugasvið Ingu Valdísar er íþróttasálfræði, en hún hefur starfað lengi innan íþróttanna.
Hún hefur þjálfað fimleika í 16 ár hjá Stjörnunni, ásamt því að hafa unnið ýmis störf fyrir
Fimleikasamband Íslands, m.a. verið landsliðsþjálfari, kennt á þjálfaranámskeiðum og setið sem
varamaður í stjórn sambandsins.
Inga Valdís sinnir meðferð ungs fólks og fullorðinna einstaklinga, ásamt því að sinna fræðslu til
hópa og íþróttaliða. Hún notar gagnreyndar meðferðir í sinni meðferðarvinnu, þar má helst
nefna hugræna atferlismeðferð (HAM), en hún hefur einnig hlotið þjálfun í Acceptance and
Commitment Therapy (ACT).Starfsferill:
2025 – Heil heilsumiðstöð, sálfræðingur
2016 – Fimleikasamband Íslands, landsliðsþjálfari og fyrirlesari
2009 – Fimleikadeild Stjörnunnar, þjálfari
2022 – 2025 Vinnuvernd, sálfræðingur
2022 The Little White House, sálfræðistofa í Kaupmannahöfn, starfsnám
2020-2022 Hvidovre gymnastik, þjálfari
2021-2022 Gymnastics academy, fyrirlesari um andlega líðan í íþróttum (e. mental trainer)
2019 – 2020 Öryggis- og réttargeðdeild Landspítalans, stuðningsfulltrúi
2018 Ungmennafélag Stjörnunnar, skólastjóri íþróttaskóla
2017-2018 Varamaður í stjórn Fimleikasambands Íslands