- Þröngur íþróttatoppur yfir rifjaboga hefur áhrif á súrefnisupptöku.
- Þröngur íþróttatoppur hefur áhrif á öndunarmynstur.
- Þröngur íþróttatoppur krefst meiri orku fyrir sama hraða í hlaupi.
- Þröngur íþróttatoppur getur kostað allt að 3 mínútur í 3 klst maraþonhlaupi.
- Flestar konur velja íþróttatoppa í hvíld (í búðinni) þar sem þeir hefta ekki öndun.
- Margar íþróttakonur velja of þrönga toppa.
Greater Breast Support Is Associated With Reduced Oxygen Consumption and Greater Running Economy During a Treadmill Running Task
Hún sýndi fram á minnkaða súrefnisupptöku (allt að 7%) sem leiðir til meiri orkunotkunar á tilteknum hlaupahraða.
Algengustu umkvörtunarefnin eru að böndin kringum rifjabogan séu of þröng og takmarki því öndun eða að axlarböndin renni til.
Í einföldu máli skiptum við öndun í hárifjaöndun (brjóstkassinn) og magaöndun (kviðurinn).
Hvort er ríkjandi öndun hjá þér að brjóskassinn þenjist út eða kviðurinn?
Of margir anda hárifja öndun sem er óskilvirkari því að við notum aðstoðar öndunarvöðvana (millirifjavöðva) meira. Það er betra fyrir okkur að við öndum niður í maga. Ástæðan er að þá er þindin, sem er okkar sterkasti og skilvirkasti öndunarvöðvi, að vinna mest en ekki millirifjavöðvarnir. Hún er með meira magn af hvatberum, þéttara háræðanet og hátt hlutfall rauðra (slow twitch) vöðvaþráða sem gerir súrefnisháða getu þindarinnar allt að fjórfalt meiri en margir aðrir vöðvar í líkamanum hafa. Þegar íþróttatoppar þrengja að önduninni hjá konum þá kostar það enn meiri orku. Skoðum þetta betur:
Nýleg rannsókn í Medicine & Science in Sports & Exercise :
Sports Bra Restriction on Respiratory Mechanics during Exercise
https://pubmed.ncbi.nlm.nih.
gov/38350462/ Shayla Kipp leiddi þessa rannsókn og hefur vakið mikla athygli eftir að hún var birt í febrúar 2024. Kipp tók þátt í 3000m hindrunarhlaupi á Ólympíuleikunum 2012 í London. Hún hefur því góða reynslu af að nota íþróttatoppa. Í stuttu máli voru þrjár týpur af íþróttatoppum notaðir af níu afreks hlaupakonum. Þær hlupu í stífum, víðum (loose) og sjálfvöldum stífleika þar sem þrýstingur á rifjaboga var mældur. Þær hlupu á hámarks og tempó hraða þar sem gögnum var safnað. Einnig var þræddur sérstakur mælir sem var notaður til að meta þrýsting í barkanum (esophagus) til að meta vinnu öndunarvöðva.
Hvað kom í ljós ?
Þrýstingur á bandinu í stífa toppnum var að meðaltali 16% meiri en í víða toppnum. Að fara úr þrönga í sjálfvalda toppinn breytti engu. En að fara frá sjálfvalda toppnum í víða toppinn minnkaði súrefnis og orkunotkun og jók þannig hagkvæmni.
Þá eru það tölunar sem skipta mestu máli. Að meðaltali batnaði súrefnisupptakan um 1,3% (-0,3% – 3,2%). 8 af 9 hlaupurum sáu bætingu. Hlaupararnir breyttu einnig öndunarmynstri. Því þrengri sem toppurinn var því grynnri og hraðari öndun átti sér stað sem er óhagkvæmara. Fyrir áhugasama bendi ég ykkur á þennan pistil.
Kipp metur að 2% bæting í súrefnisupptöku (VO2) jafngildi 3 mínútum í maraþonhlaupi sem er u.þ.b. 3 klst.
Ástæðan fyrir þessum skilvirknis mun er að þröngir toppar þvinga konur að anda öðruvísi. Þegar hlaupið var á VO2max (erfitt) álagi þá þurfti fleiri grynnri andardrætti eða 57 á mínútu meðan að í víðu toppnum þurfti 52 andardrætti. Vinnan við það er uþb 16% meiri orka sem útskýrir mun á súrefnisupptöku. Svo eru það hliðar áhrifin sem verða af þessu. Það þarf mikla vöðvavinnu frá þindinni til að knýja lungun. Alveg eins og vöðvarnir í fótleggjunum þá geta þessir öndunarvöðvar orðið þreyttir. Þegar þeir verða þreyttir þá verða þeir óskilvirkari og stela súrefnisríku blóði frá öðrum vöðvum eins og fótleggjunum þínum sem eru í fullri vinnu við að hlaupa eða hjóla. Öndunarvöðvarnir geta verið að taka vel yfir 15% af heildasúrefninu úr blóðinu á mikilli ákefð. Niðurstaðan er hægari hlaupahraði eða að þú notar meiri orku á að halda maraþon hraðanum þínum.
Kipp bendir á og vísar í aðrar rannsóknir sem segja að allt að 70% kvenna velji of þrönga íþróttatoppa/
íþróttabrjóstahaldara. Kipp bendir á að konur ættu að fá faglegt álit og mælingu áður en keyptur er íþróttatoppur. Einnig bendir hún á að flestar konur vilja stuðning við brjóstkassan sem er kannski óþarfi. Enginn af konunum í rannsókninni kvartaði eða fannst víði íþróttatoppurinn óþægilegur. Annar moli er að flestar konur velja íþróttatoppa eftir því hvernig þeim líður í hvíld (í versluninni) en ekki hlaupandi. Súrefnisupptaka minnkaði ekkert í hvíld í þröngu íþróttatoppnum. Það þarf að hlaupa og helst undir ákefð ef vel á að vera.
Efni á Heil Heilsumiðstöð er ætlað til fræðslu. Það á ekki að koma í stað faglegrar aðstoðar sjúkraþjálfara, sálfræðinga, næringafræðinga eða lækna.